Letilíf

Jæja maður er nú aldeilis að standa sig vel í að bloggaUllandiþað nær bara ekki nokkurri átt hvað maður er latur. Er að vinna í því að hrista af mér letina, ætla meira að segja að reyna að henda einhverjum myndum hérna inn á næstunni, kann bara ekki nógu vel á þetta en ætla að fá hjálp frá litlu systir sem er snilli í svoleiðisBrosandi

Annars lítið að frétta hálfgert spennufall í gangi eftir frekar erfiða mánuði en allt að birta til þessa dagana. Malaði fyrir framan imbann alla helgina og missti mig soldið í eldamennsku og huggulegheitum, enda alveg tími til að hlaða batteríin fyrir sumarið.

Íris mín flutt heim aftur tímabundið, er að leita sér af íbúð í Grafarvogi, ef þið vitið um eitthvað endilegan látið okkur vita. Bumbubúinn hennar þrífst vel allavega er farin að koma smá bumba á stelpuna, alveg krúttlegt, og amma gamla hefur gaman afHlæjandi 

Anyways ég bara hef lítið að segja og sumt segir maður bara alls ekki.

 Gúrílú

Konan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband