Nóg að gerast

Jæja geri svona eins og hún systir mín og færi bloggið mitt yfir hingað, blog.central ekki að virka sem skildi, þurrkaði út það sem ég var búin að setja inn og enginn veit af hverju það skeði!!!

 Anyways nóg búið að vera að gera undanfarið, sl. mánuður verið fjörugur, bæði bögg og vesen og svo margt skemmtilegt, fékk td. rosa fréttir frá fjölskyldumeðlimi sem á eftir að hafa mikil áhrif á lífið í framtíðinni, hreint út sagt alveg frábærar fréttir, uppljóstra þeim eftir nokkrar vikur!!

Mætti í vinnu í morgunn eftir að hafa verið veik heima sl. 2 daga þar sem vinstri öxlin, handleggurinn og hálsinn festust og neituðu að leyfa mér að líta til vinstri á tímabili, heimsótti lækni sem gaf mér hin ýmsu verkjastillandi og bólgueyðandi lyf til að redda þessu. Lyfin hafa allvega reddað mér góðum svefni þar sem ég sofna alltaf stuttu eftir að ég tek þessar 3 pillur á 6-8 tíma fresti ; )

Ég er reyndar bara að vinna til hádegis í dag, þar sem ég er að fara til Keflavíkur í jarðaför á eftir, og ætla hitta vinkonur mínar eftir það og jafnvel fara út að borða, enda var Hrafnhildur vinkona mína að koma til landsins í gær og maður hefur ekki séð hana í rúmt ár ; )

 Nú er rétt rúm vika í ferminguna hjá henni Beggu og er allt að smella saman þessa dagana, þannig ég á nú ekki von á öðru að þetta eigi allt eftir að ganga smurt fyrir sig, enda konan vön að skella saman veislu á notime, enda fær maður góða hjálp frá góðu fólki.

En ætla að fara að skella mér í Kefló

Knús

Konan


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Noh það er naumast, gustar af konunni hvert sem hún fer og núna á blog.is ;) til lukku með nýju síðuna mín kæra og ég bíð spennt eftir að kíkja í veisluna hennar Beggu -öss þó ég þurfi kannski að skola einn eða tvo diska á milli þess sem ég læðist í matinn góða...

Linda (IP-tala skráð) 5.4.2006 kl. 12:41

2 identicon

hey gleymdi einu, elska niðurbælt prump í leðursófasetti...

Linda (IP-tala skráð) 5.4.2006 kl. 12:45

3 Smámynd: Rosaleg

Vííí - nú getum við bloggað og bloggað og bloggað!!

Farðu svo að koma í heimsókn til að niðurbæla það í mitt leðursófasett!!

Rosaleg, 13.4.2006 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband